Innlent

Viðreisn orðin stærri en Samfylking

Gissur Sigurðsson skrifar
Benedikt Jóhannesson og félagar hans í Viðreisn fagna nýrri könnun.
Benedikt Jóhannesson og félagar hans í Viðreisn fagna nýrri könnun.
Píratar mælast áfram stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið.

Fylgi við Pírata mælist 28 prósent. Sjálfstæðisflokkur mælist með 19,7 prósent, dalar aðeins frá síðustu könnun, Vinstri grænir fá 17,5 prósent og bæta aðeins við sig fylgi og sömuleiðis Viðreisn, sem fær nú 9,7.

Fylgi við Samfylkinguna mjakast aðeins upp á við og mælist nú níu prósent og Björt framtíð fær 4,5 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×