Fótbolti

Viðar Örn auglýsir heita potta í Noregi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viðar Örn í umræddri auglýsingu fyrir heita pottinn.
Viðar Örn í umræddri auglýsingu fyrir heita pottinn.
„Þetta kom óvænt upp og var allt miklu stærra en ég hélt. Þetta var frekar fyndið en mjög skemmtilegt,“ segir Viðar Örn Kjartansson, framherji Vålerenga í Noregi, en hann er farinn að auglýsa heita potta þar í landi.

Ekki bara það heldur hefur hann fengið pott með sínu eigin nafni. Potturinn heitir Örn eins og margir kalla hann í Noregi.

„Það er íslenskt þema yfir þessum pottum. Það þarf að nota eld eða eitthvað. Þetta er mjög skemmtilegt og flott. Þeir vildu endilega fá mig til þess að auglýsa þetta fyrir sig og ég sagði af hverju ekki?“

Viðar Örn segist hafa fengið ágætlega greitt fyrir viðvikið en fékk hann líka pott? Einn Örn?

„Ég fékk einn og ég læt senda hann heim til Íslands. Mamma mín fær hann og á von á Erninum. Hún getur látið fara vel um sig þar. Það er alltaf gaman að gleðja mömmu sína.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×