Innlent

Víða hálka

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/arnþór
Veður fer heldur kólnandi og á láglendi og er því hálka eða líkur á hálku víða um land. Einkum við vestan- og suðvestanvert landið en einnig norðan- og norðaustanlands, sérstaklega á fjallvegum. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Hálka er á Hellisheiði, Sandskeiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Mosfellsheiði, en annars er greiðfært á Suður og Suðausturlandi. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði og hálkublettir á Bröttubrekku. Hálkublettir eru nokkuð víða á norðanverðu landinu.

Á Vestfjörðum er þæfingsfærð og skafrenningur á Hrafnseyrarheiði en snjóþekja og éljagangur á  Dynjandisheiði, Trostansfirði og á Kleifaheiði. Hálka og éljagangur er á Steingrímsfjarðarheiði, Hálfdán og Mikladal.Hálka er á Fjarðarheiði fyrir austan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×