Heilsa

Við eigum bara einn líkama

Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir Vísir/Vilhelm
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir, einkaþjálfari og snyrtifræðingur, hugsar vel um heilsuna og hollt mataræði skiptir hana miklu. Hún veitir hér smá innsýn inn í eigið matarplan og gefur auk þess girnilega uppskrift.

Aðalheiður útskrifaðist sem snyrtifræðingur 2008. Hún hefur æft frá því hún man eftir sér og unnið marga titla í bikiní-fitness. Heilsa, matur og líkamsrækt eru hennar aðaláhugamál.

Hún útskrifaðist sem einkaþjálfari frá einkaþjálfaraskóla World Class árið 2010 og hefur starfað á stöðinni í Laugum síðan þá.

„Heilsan, heilbrigður lífsstíll og hollt mataræði skiptir mig mjög miklu máli. Ég hugsa vel um það hvað ég set ofan í mig og eins og flestir ættu að vita þá skiptir mataræðið um 80 prósent máli í heilbrigðum lífsstíl. Við eigum bara einn líkama og ættum alltaf að hugsa vel um hvað við borðum. Ég legg jafn mikla áherslu á mataræði og æfingar fyrir mína viðskiptavini, geri fyrir þá matar- og æfingaplön og legg áherslu á að hafa hvort tveggja fjölbreytt og skemmtilegt.“

Matarplan Aðalheiðar þessa vikuna

Morgunmatur: Hafragrautur með hampfræjum, chia-fræjum, rúsínum og kanil.

Millimál: Próteinsjeik + banani

Hádegismatur: Oftast holli og góði maturinn í Laugar Café eða salatbarinn, passa að fá prótein, holl kolvetni og holla fitu.

Millimál: Avókadó-próteinboozt

Kvöldmatur: Fiskur 1-3x í viku, þá yfirleitt lax eða bleikja, það er mitt uppáhald, eða kjúklingur og oftast sætar kartöflur og salat með.

Kvöldnasl: Æðið mitt núna er að frysta skyr.is án viðbætts sykurs í smá stund þá verður það eins og ís. Ég fæ mér alltaf eitthvað próteinríkt fyrir svefninn.

Avocado boozt eða búðingur

1 skeið vanilluprótein eða 1 lítil dós vanilluskyr

½ avocado

1 epli, ég nota græn

½ sítróna eða sítrónusafi

vatn og klaki (ef þið viljið búðing þá notið þið minna vatn)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×