Lífið

Victoria missir mikilvæga engla

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Doutzen Kroes hefur sagt skilið við Victoria's Secret eftir sjö ár.
Doutzen Kroes hefur sagt skilið við Victoria's Secret eftir sjö ár. Vísir/getty
Undirfatamerkið Victoria's Secret hefur misst tvo engla frá sér undanfarið.

Ofurfyrirsætan Karlie Kloss tilkynnti í vikunni að hún hefði sagt skilið við englahlutverkið og ætlaði að hefja nám við New York-háskóla næsta haust.

Þá hefur önnur ofurfyrirsæta, Doutzen Kroes, tilkynnt að hún ætli einnig að skila inn vængjunum, þar sem vinnan fyrir undirfatamerkið stangist á við önnur verkefni í Evrópu, en hún hefur verið engill síðan 2008.

Þetta staðfesti Ed Razek, yfirmaður markaðsmála hjá Victoria's Secret, á Instagram-síðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×