Vesturbærinn tengdur varaleið eftir rafmagnsleysi gærkvöldsins Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. janúar 2016 11:51 Um tvær klukkustundir tók að tengja alla við rafmagn á nýjan leik. Vísir/GVA
Háspennustrengur sem tengir margar spennustöðvar í sunnanverðum Vesturbæ Reykjavíkur bilaði í gærkvöldi og olli það rafmagnsleysinu sem fjölmargir íbúar Vesturbæjarins fundu fyrir. Búist er við því að bráðabirgðaviðgerð dugi fram yfir helgi áður en að gert verður við strenginn. „Það bilaði háspennustrengur sem liggur frá Meistaravöllum niður á háskólasvæðið,“ segir Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Veitna í samtali við Vísi. „Það eru talsvert margar spennustöðvar tengdar þessum streng sem urðu þá rafmagnslausar og hús þeim tengd.“ Rafmagnsleysið náði allt frá Fornhaga að Öskjuhlíð en um tvær klukkustundir tók að tengja alla notendur við rafmagn eftir annarri leið. „Spennustöðvarnar eru tengdar dreifikerinu eftir tveimur leiðum og verkefnið í gærkvöldi var því að tengja þær hverjar á fætur annarri eftir hinni leiðinni,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir enga ástæðu til að ætla annað en að þessi varaleið haldi en á mánudaginn hefst leit að því hvar bilunin í strengnum er nákvæmlega svo að gera megi við hann.
Tengdar fréttir Rafmagnslaust í hluta Vesturbæjar Háspennubilun varð í dreifikerfi Veitna á tíunda tímanum í kvöld. 15. janúar 2016 22:30 Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
Rafmagnslaust í hluta Vesturbæjar Háspennubilun varð í dreifikerfi Veitna á tíunda tímanum í kvöld. 15. janúar 2016 22:30