Glamour

Versace sýnir guðdómlega kjóla í París

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Þessa stundina er Haute Couture tískuvikan í París en í gær sýndi Atelier Versace flotta og ferska línu. 

Kjólarnir voru sem fyrr í aðalhlutverki hjá tískuhúsinu. Síðir kjólar með háum klaufum og fallegum smátriðum sem gleðja augað. Donatella Versace veit hvað hún syngur þegar kemur að fínum síðkjólum og kæmi ekki á óvart að sjá einhverja af þessum á rauða dreglinum strax í haust.

Kvenlegir hælar með slaufum, dökkar varir, hárið í hnút, blár augnskuggi og svo stórir hringir í eyrun voru svo punkturinn yfir i-ið í fallegri sýningu. 

Karen Nelson opnaði sýninguna.
Bella Hadid
Stórir hringir og dökkar varir.





×