Fótbolti

Verður markamet Meistaradeildarinnar slegið í vikunni?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru frábærir á stóra sviðinu.
Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru frábærir á stóra sviðinu. Vísir/AFP
Tveir bestu knattspyrnumenn heimsins, Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, hafa verið duglegir að slá hvers konar markamet á síðustu árum. Eitt þeirra meta sem gæti fallið á næstu vikum er markametið í Meistaradeild Evrópu.

Það er sem stendur í eigu Raúl González, leikja- og markahæsta leikmanns í sögu Real Madrid, en hann skoraði 71 mark á árunum 1995-2011. Raúl skoraði 66 þessara marka fyrir Real Madrid og fimm fyrir Schalke 04.

Ronaldo kemur næstur á markalistanum í Meistaradeildinni með 68 mörk; 15 þeirra skoraði hann fyrir Manchester United og 53 fyrir Real Madrid. Hann vantar því aðeins þrjú mörk til að ná manninum sem lék í treyju númer sjö hjá Real Madrid á undan honum.

Markatölfræði Portúgalans með Real Madrid í Meistaradeildinni er lygileg, en Ronaldo þurfti aðeins 52 leiki til að ná þessum markafjölda. Hann er með öðrum orðum með meira en mark að meðaltali í leik með spænska stórliðinu í Meistaradeildinni. Ronaldo á einnig metið yfir flest mörk á einu tímabili í Meistaradeildinni, en hann skoraði 17 mörk þegar Real Madrid fór alla leið í fyrra.

Lionel Messi er þriðji á listanum. Argentínumaðurinn hefur skorað 67 mörk fyrir Barcelona í Meistaradeildinni, einu minna en Ronaldo og fjórum minna en Raúl. Messi er hins vegar með besta markameðaltalið af þessum þremur, en hann er með 0,77 mörk að meðaltali í leik gegn 0,5 hjá Raúl og 0,65 hjá Ronaldo.

Ronaldo skoraði gegn Basel í fyrsta leik Real Madrid í Meistaradeildinni á þessu tímabili og hann fær tækifæri til að bæta við þann fjölda þegar Evrópumeistararnir mæta Ludogorets frá Búlgaríu á morgun.

Messi á talsvert erfiðara verkefni fyrir höndum, en Barcelona sækir Paris SG heim í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Flest mörk í Meistaradeild Evrópu:

71 mark - Raúl González

68 mörk - Cristiano Ronaldo

67 mörk - Lionel Messi

56 mörk - Ruud van Nistelrooy

50 mörk - Thierry Henry

48 mörk - Andriy Shevchenko

46 mörk - Filippo Inzaghi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×