Innlent

Vera nýr framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna

Atli Ísleifsson skrifar
Vera Knútsdóttir og Berglind Sigmarsdóttir.
Vera Knútsdóttir og Berglind Sigmarsdóttir. Mynd/Félag Sameinuðu þjóðanna á íslandi
Vera Knútsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna.

Vera var ráðin úr hópi 93 umsækjenda, en hún tekur við starfinu af Berglindi Sigmarsdóttur.

Þröstur Freyr Gylfason, formaður Félags SÞ, segir félagið mjög þakklátt fyrir þann sterka hóp umsækjenda heima og erlendis sem hafi sótt um starfið. „Við teljum að ráðningarferlið hafi skilað okkur afar hæfum framkvæmdastjóra, enda býr Vera að víðtækri reynslu og þekkingu á alþjóða- og þróunarmálum, meðal annars af vettvangi í Líbanon og Sómalíu. Við vitum að sú reynsla kemur til með að nýtast mjög vel í störfum félagsins í þágu aukinnar almannavitundar, fræðslu og samfélagsumræðu á Íslandi um Sameinuðu þjóðirnar og þróunarmál.

Stjórn félagsins er sömuleiðis ánægð með þá sýn um framþróun félagsins og þróun verkefna á næstunni, sem Vera færir inn í starfsemi félagsins,“ segir Þröstur Freyr.

Í tilkynningu frá félaginu segir að Vera hafi um fimm ára reynslu af alþjóðastarfi og þar af þriggja ára reynslu af störfum hjá Sameinuðu þjóðunum. „Vera hefur reynslu af mannúðarstarfi og flóttamannaaðstoð og hefur starfað bæði hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, í Sómalíu og Flóttamannaaðstoð SÞ fyrir Palestínumenn, UNRWA, í Líbanon.

Áður var hún í starfsnámi á viðskiptasviði og alþjóða- og öryggissviði utanríkisráðuneytisins, þ.á.m. verkefnum tengdum mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Vera lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og MA-gráðu í öryggis- og varnarmálafræðum frá Georgetown háskóla í Bandaríkjunum árið 2011.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×