Lífið

Veisluhöld í skömmtum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
María Lovísa býr fyrir austan fjall og starfar þar hluta vikunnar.
María Lovísa býr fyrir austan fjall og starfar þar hluta vikunnar.
María Lovísa Ragnarsdóttir er sextug í dag. Hún er þekkt nafn í heimi fatahönnunar og hefur rekið verslun og saumastofu í yfir 30 ár, nú um langt skeið á Skólavörðustíg 6A. Hitt vita kannski færri að hún býr fyrir austan fjall og sinnir hestum meðfram hönnuninni.

„Ég bý í Tjarnarbyggð, rétt fyrir utan Selfoss,“ segir hún. „Þetta er búgarðabyggð, góðir reiðvegir hér í kring og margir búnir að koma sér upp hesthúsum. Ég hef bara búið hér í þrjú ár en hef verið 20 ár í hrossum.“

María Lovísa hannar og sníður heima hjá sér en saumastofan er í Reykjavík. „Ég er heima á mánudögum og þriðjudögum, keyri svo í bæinn og hef aðstöðu til að gista þar þegar veðrið er brjálað.“

Hún kveðst hafa byrjað 11 til 12 ára að teikna föt og kynnst fataframleiðslu strax eftir gagnfræðapróf. „Ég fór að vinna í Gefjun á Snorrabraut þegar ég var 17 ára, það var stór saumastofa og ég lærði mikið þar. Ég sótti líka sníðanámskeið og hélt svo í nám til Kaupmannahafnar við Margaretha-hönnunarskólann árið 1977.“

Kreppur í efnahagslífi hefur María Lovísa staðið af sér og hún segir túristana kunna vel að meta vörurnar hennar. En hvað um útrás? „Ég hef ekki farið í þá vinnu að koma fatnaðinum á framfæri erlendis. Þetta er lítið fyrirtæki, ég er bara með tvær konur með mér.“

María Lovísa á einn son og tvö barnabörn sem búa í næsta húsi svo stutt er fyrir þau að skreppa til hennar í kaffi í dag, þótt hún segi ómögulegt að vera með veislu á þriðjudegi. „Ég ætla að halda upp á afmælið í skömmtum. Fyrsti skammtur er á föstudaginn. Þá verður kvennaboð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×