Íslenski boltinn

Veigar Páll: Ætla að taka allavega eitt ár í viðbót.

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Veigar Páll Gunnarsson, leikmaður Stjörnunnar.
Veigar Páll Gunnarsson, leikmaður Stjörnunnar. vísir/hanna
Veigar Páll Gunnarsson skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Stjörunnar á Víkingi Ólafsvík í dag en leikurinn var þó ekki kveðjuleikur hans.

„Það er svolítil óvissa hjá mér eins og er en ég vonandi sýndi það í dag að ég eigi eitthvað eftir. Mér líður eins og ég eigi allaveganna eitt ár í viðbót og ég ætla að gera það,“ sagði Veigar Páll sem verður samningslaus eftir tímabilið.

Hann segir að sigurinn í dag hafi verið góður enda tryggði hann Stjörunni Evrópusæti.

„Þetta var frekar jafn fyrri hálfleikur og við komumst ekki almennilega í gang en vorum heppnir að fara inn með 1-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik opnaðist leikurinn og við nýttum okkur það og vinnum sannfærandi sigur.“

„Það er rétt að deildin spilaðist öll dálítið furðulega, ekkert lið sem var sannfærandi í ár sem hentaði okkur mjög vel þar sem við höfum ekki heldur verið sannfærandi en endum engu að síður í öðru sæti. Við tökum því klárlega fagnandi“, sagði Veigar Páll um tímabilið sem var að ljúka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×