Bílar

Veifar til mömmu á 180 km hraða í Dakar

Finnur Thorlacius skrifar
Nú stendur yfir Dakar þolaksturskeppnin í S-Ameríku. Þar er keppt á bílum, mótorhjólum, fjórhjólum og trukkum. Einn keppandanna í mótorhjólaflokki er Frakkinn Adrien Van Beveren sem nú er í sjötta sæti í mótorhjólaflokknum eftir tvo keppnisdaga.

Þyrlur með myndavélar fylgjast grannt með keppninni og færa hana heim í stofu. Adrien Van Beveren var einmitt á 180 km ferð undir einni slíkri í gær á malarvegi. Hann sá sér engu að síður fært að veifa til mömmu sinnar með því að sleppa annarri hendinni af stýri hjólsins.

Ekki myndu allir leyfa sér það á 180 km ferð, en hafa verður í huga að ökumenn í Dakar rallinu eru hvað bestu ökumenn í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×