Íslenski boltinn

Vegabréfinu stolið og varð eftir í Tyrklandi

Atli Fannar Jónsson gekk í raðir Víkings frá ÍBV í haust.
Atli Fannar Jónsson gekk í raðir Víkings frá ÍBV í haust. Mynd/Vikingur.is
Víkingurinn Atli Fannar Jónsson gat ekki ferðast með liðinu sína heim til Íslands úr æfingaferð til Tyrklands þar sem að vegabréfinu hans var stolið. Þetta kom fram á Fótbolti.net í morgun.

Haraldur Haraldsson, framkvæmdarstjóri Víkings, er á leið til Tyrklands til að greiða fyrir heimkomu Atla Fannars.

Vegabréf Atla Fannars var í vörslu hótelsins þar sem lið Víkings dvaldi en þeim var aftur skilað til leikmanna fyrir helgi. „Við vitum ekki hvort að passinn hafi verið í bunkanum þegar við fengum þá eftir eða hvort honum hafi verið stolið á herberginu. Það er aukaatriði,“ sagði Haraldur.

Það væsir þó ekki um Atla Fannar á meðan hann er ytra. „Forsvarsmenn fyrirtækisins sem eru með okkur eru á svæinu og hann er í fimm stjörnu hýsingu,“ sagði Haraldur við Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×