Innlent

Varla stætt á veginum vegna hálku á Hvolsvelli

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla beinir þeim orðum til almennings að fara ofsalega varlega í umferðinni.
Lögregla beinir þeim orðum til almennings að fara ofsalega varlega í umferðinni. Vísir/Vilhelm
Gríðarleg hálka er nú á og í kringum Hvolsvöll en að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hafa bílar keyrt út af veginum nú í morgunsárið.

„Það er launhált og það er ekki stætt á veginum. Það virðist vera mest hérna í og í kringum Hvolsvöll,“ segir fulltrúi lögreglunnar í samtali við Vísi.

„Hérna var umferðaróhapp þar sem bíll keyrði á ljósastaur og annar fer aftan á hann. Tveir aðrir bílar fara svo út af veginum en þeir sleppa við áreksturinn.“

Lögregla beinir þeim orðum til almennings að fara ofsalega varlega í umferðinni. „Þegar lögregla hefur komið á vettvang höfum við að minnsta kosti einu sinni átt fótum okkar fjör að launa. Það lá við árekstri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×