Innlent

Vann rúmar 13 milljónir í Eurojackpot

Atli Ísleifsson skrifar
Vinningsupphæð þess heppna var 13.172.890 krónur.
Vinningsupphæð þess heppna var 13.172.890 krónur. Mynd/Eurojackpot
Heppinn einstaklingur vann í kvöld rúmar 13 milljónir króna í Eurojackpot.

Var hann einn fjögurra sem vann 3. vinning, en hinir miðarnir voru seldir í Þýskalandi (tveir) og Danmörku. Ekki kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá hvar miðinn var seldur.

Þá vann einn maður tvær milljónir í Jókerútdrætti kvöldsins, en sá miði var seldur í Happahúsinu í Kringlunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×