Íslenski boltinn

Valur fyrsta liðið til að skora gegn FH

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elísa hér til vinstri var hetja Vals í dag.
Elísa hér til vinstri var hetja Vals í dag. vísir/aðsend
Valur varð fyrsta liðið til að vinna og skora gegn nýliðum FH í Pepsi-deild kvenna, en Valsstúlkur unnu sinn annan leik í röð.

FH hafði fyrir leikinn í dag ekki fengið á sig mark í deildinni, en ísinn var brotinn á 36. mínútu þegar Elísa Viðarsdóttir skoraði eftir hornspyrnu.

Fleiri urðu mörkin ekki og annar 1-0 sigur Vals í röð, en þær unnu ÍBV 1-0 í Eyjum í síðasta leik.

Valur er öðru sætinu með átta stig, en FH er í því þriðja með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×