Íslenski boltinn

Valsstúlkur völtuðu yfir Þór/KA | Sjáðu mörkin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eftir nokkuð langa leit kom að því að Valsstúlkur fundu markaskóna sína.

Það gerðu þær í kvöld er Þór/KA kom í heimsókn í Pepsi-deild kvenna. Lokatölur í þeim leik, 6-1.

Valsstúlkur voru búnar að skora fimm mörk í fimm leikjum þar til kom að leiknum í kvöld. Þær toppuðu því allt sumarið hjá sér í leiknum í kvöld.

Elín Metta Jensen skoraði þrennu í leiknum og Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk. Laufey Björnsdóttir komst einnig á blað. Margrét Árnadóttir skoraði mark norðanstúlkna.

Með sigrinum komst Valur upp að hlið Blika í öðru sæti deildarinnar en Blikastúlkur eiga leik inni en þær eru að spila gegn ÍBV núna.

Þór/KA fellur aftur á móti í fjórða sætið með þessum skelli.

Mörkin úr 6-1 sigri Vals á Þór/KA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×