Lífið

Valin fegursta fótboltaeiginkona Búlgara þó hún sé skilin við fótboltamann

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ásdís Rán.
Ásdís Rán. mynd/úr einkasafni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir er fegursta fótboltaeiginkona Búlgara að mati fjölmiðilsins Kliuki. Er þetta forvitnilegt val, þá sérstaklega í ljósi þess að Ásdís og knattspyrnukappinn Garðar Gunnlaugsson skildu árið 2012 en þau bjuggu um hríð í Búlgaríu.

„Íslenska jöklafegurðardísin er kannski skilin við eiginmann sinn, Garðar, en er samt á toppi listans í Búlgaríu. Hún á nafnbótina skilið ef marka má nýjar myndir af henni,“ segir í umsögn Kliuki um Ásdísi.

Með Ásdísi á listanum eru til dæmis fyrirsætan Nikoleta, söngkonan Alisia og besta vinkona Ásdísar, leikkonan Elena Boeva.

Ásdís er hæstánægð með að rata á listann.

„Þetta eru allt stórglæsilegar stelpur sem hafa verið að vinna með mér í bransanum úti. Það er bara heiður að fá að vera með þeim á lista hvort sem það er útaf fegurð eða öðru.“

Þess má geta að fyrrverandi eiginmaður Ásdísar, Garðar, er staddur í Búlgaríu um þessar mundir með kærustu sinni, Ölmu Dögg Torfadóttur.

Elena, besta vinkona Ásdísar.
Söngkonan Alisia.
Fyrirsætan Nikoleta.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×