Innlent

Útmeð´a hlauparar komnir á hlaupabretti í Herjólfi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Hlaupið hefur gengið vel og eru hlauparar á undan áætlun.
Hlaupið hefur gengið vel og eru hlauparar á undan áætlun. Mynd/Facebook síða Útmeð'a
„Almenningur er hvattur til að leggja hlaupahóp Útmeð‘a forvarnarátaksins lið með því að hlaupa síðasta sprettinn í hringveginum með hópnum næstkomandi sunnudag, 5. Júlí,“ segir í tillkynningu frá Geðhjálp.

Hlaupahópur Útmeð‘a lagði af stað hringinn í kringum landið þann 30.júní síðastliðinn. Samhlaupið sem boðað er til hefst klukkan 11 þann 5. júlí á bílastæðinu við Húsgagnahöllina.

„Hlaupið verður niður Bílshöfða, gegnum Elliðaárdal og upp Bústaðarveg í átt að aðalskrifstofu Rauða kross Íslands við Efstaleiti 9 í fylgd lögreglu. Við Efstaleiti munu Geðhjálp og Hjálparsími Rauða krossins slá upp grillveislu fyrir hlauparana og aðra gesti um kl. 12,“ segir í tilkynningunni.

Hlaupahópurinn stefndi að því að slá hraðamet með því að  leggja hringveginn eða um 1.400 km að baki á tæpum fimm sólarhringum. Áætlað var að hlaupið yrði á hlaupabretti á ferjunni út í Vestmannaeyjar, hlaupinn hringur í eyjunum og aftur til baka á hlaupabretti á ferjunni. Hópurinn er nú í Herjólfi og komin á brettið.

#brettiðrúllar #herjólfur #útmeða

Posted by Útmeða on Saturday, July 4, 2015


Hægt er að fylgjast með staðsetningu hlauparanna hér.

Geðhjálp, Hjálparsími Rauða krossins og hlaupahópurinn standa sameiginlega að baki Útmeð‘a átakinu. Með  því er vakin athygli á því að sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra karlmanna á Íslandi og safnað peningum til að framleiða gagnvirkt myndband í því skyni að fækka sjálfsvígum í þessum viðkvæma hópi.  Á bilinu 4 til 6 ungir menn á aldrinum 18 til 25 ára taka líf sitt á Íslandi á hverju ári.

Stefnt er að því að forvarnarmyndbandið verði frumsýnt á alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga þann 10. september næstkomandi. Hægt verður að styrkja átakið og kaupa Útmeð‘a boli við Húsgagnahöllina og Estaleiti á 2.000 kr.

Hér má nálgast Facebook viðburð fyrir samhlaupið á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×