Innlent

Útlendingastofnun leitar að húsnæði fyrir hælisleitendur

atli Ísleifsson skrifar
Íslenskukennsla fyrir hælisleitendur.
Íslenskukennsla fyrir hælisleitendur. Vísir/arnþór
Útlendingastofnun leitast nú því að útvega fleiri húsnæðis- og þjónustuúrræði fyrir hælisleitendur.

Í tilkynningu frá stofnuninni segir að vegna hins mikla fjölda fólks sem óskað hafi eftir alþjóðlegri vernd hér á landi á undanförnum mánuðum séu úrræði Útlendingastofnunar og samstarfsaðila fyrir umsækjendur nú nálægt því að vera fullnýtt.

Snörp aukning á undanförnum dögum hafi gert það að verkum að nauðsynlegt sé að leita frekari úrræða og öðstöðu hvað þetta varðar.

„Á grundvelli sérstakra þjónustusamninga við Útlendingastofnun hafa Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær og Reykjanesbær sinnt þjónustu- og húsnæðismálum við að jafnaði um 180 til 190 umsækjendur um alþjóðlega vernd á mánuði. Útlendingastofnun hefur undanfarna mánuði haft svipaðan fjölda í húsnæði og þjónustu eða um 170 umsækjendur að jafnaði.

Útlendingastofnun og innanríkisráðuneytið, í samvinnu við þau sveitarfélög sem þegar hafa með höndum þessa þjónustu, leita nú leiða til að útvega fleiri húsnæðis- og þjónustuúrræði, meðal annars hjá öðrum sveitarfélögum á landinu.“

Árið 2016 orðið metár

316 manns sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi á fyrstu sjö mánuðum ársins og það sem af er ágústmánuði hafa 45 sótt um, þar af um 20 manns síðastliðna fimm daga.

Í tilkynningunni segir að árið 2016 sé því þegar orðið metár hvað varðar fjölda umsókna um vernd en allt árið í fyrra voru umsækjendur 354.

„26% umsækjenda á fyrstu sjö mánuðum ársins komu frá Albaníu. Alls telja borgarar ríkja Balkanskagans 42% umsókna. Er þetta hlutfall í takt við tölfræði ársins 2015. 364 málum varðandi alþjóðlega vernd var lokið á fyrstu sjö mánuðum ársins hjá Útlendingastofnun,“ segir í tilkynningunni frá Útlendingastofnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×