Innlent

Utanríkisráðuneytið hvetur Íslendinga í Berlín til að láta vita af sér

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. mynd/epa
Utanríkisráðuneytið hefur biðlað til Íslendinga að láta aðstandendur vita af sér. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Íslendingar í Berlín séu hvattir til þess að nýta sér samfélagsmiðla til að láta vini og ættingja vita að þeir séu óhultir.

Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hafa ekki borist neinar upplýsingar um að Íslendingar hafi slasast í árásinni í kvöld en hún er í beinu sambandi við neyðarteymi þýsku stjórnsýslunnar sem tekur saman upplýsingar um fórnarlömb.

„Utanríkisráðuneytið hvetur alla Íslendinga sem eru á svæðinu að fylgjast vel með tilmælum yfirvalda á staðnum. Sem stendur er fólk beðið um að vera ekki að vera á ferli að óþörfu og halda sig á öruggum stöðum. Ef aðstandendur á Íslandi hafa áhyggjur af fólki sem vitað er að er á svæðinu og ná ekki sambandi við það, eru þeir hvattir til að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 5459900” segir í tilkynningunni.

„Menn eru í sjokki“

Martin Eyjólfsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi, sagði í samtali við fréttastofu Vísis að honum hefðu ekki borist fregnir af því að Íslendingar hefðu verið á meðal særðra. „Við höfum verið í sambandi við lögregluyfirvöld hér og okkur er ekki kunnugt um að neinir Íslendingar hafi verið meðal særðra eða látinna.“

Martin segir að fólk sé slegið yfir atburðum dagsins. „Maður veit varla hvernig maður á að bregðast við þessu. Þetta er auðvitað hörmulegt og ömurlegt illvirki sem ekki er á nokkurn hátt hægt að skilja. Menn eru í sjokki yfir þessu.“





Markaðurinn er í nágrenni við Kurfuerstendamm sem er stærsta verslunargata Berlínar.mynd/getty
Einn af stærstu jólamörkuðum Berlínar

Aðspurður um hvort götur borgarinnar séu tómlegar segist Martin ekki geta svarað enda hefur hann haldið sig heima samkvæmt ráðleggingum yfirvalda. Hann keyrði hins vegar fram hjá markaðnum á leið sinni úr vinnunni í dag og rölti þarna í gegn ásamt fjölskyldu sinni á laugardaginn var.

Að sögn Martins er markaðurinn á Breitscheidplatz-torgi á meðal stærstu jólamarkaða í Berlín. Markaðurinn er steinsnar frá Kurfuerstendamm, stærstu verslunargötu borgarinnar. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×