Lífið

Usain Bolt, Owen Wilson og James Corden kepptu í 100 metra hlaupi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hörkukeppni.
Hörkukeppni. vísir
The Late Late Show með James Corden er einn vinsælasti spjallþáttur heims í dag en Bretinn fer ávallt öðruvísi leiðir en aðrir spjallþáttastjórnendur.

Á dögunum skoraði hann á fljótasta mann jarðarinnar, Usain Bolt. Allt starfslið þáttarins, Corden, Usain Bolt og leikarinn Owen Wilson kepptu í 100 metra hlaupi á bílastæði í Los Angeles.

Keppnin var nokkuð hörð en þetta hafðist að lokum hjá Jamaíkamanninum Usain Bolt sem kom langfyrstur í mark. Hér að neðan má sjá þessa skemmtilegu keppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×