Tónlist

Uppselt á tónleika Jessie J

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Jessie J er þekkt fyrir að gefa sig alla fram á tónleikum.
Jessie J er þekkt fyrir að gefa sig alla fram á tónleikum. vísir/getty
Uppselt er á tónleika bresku tónlistarkonunnar Jessie J sem fram fara í Laugardalshöl þann 15. september næstkomandi. Miðasala hófst fyrir rúmum þremur sólarhringum.

Að sögn tónleikahaldarans Guðbjarts Finnbjörnssonar verður ekki unnt að halda aukatónleika og ólíklegt að hægt verði að bæta við fleiri miðum.

Jessie J spratt fram á sjónarsviðið fyrir fjórum árum en hún er fyrsta konan til að ná sex lögum af sömu plötu inn á topp tíu lista. Árið 2012 söng hún lagið We Will Rock You með hljómsveitinni Queen á lokaathöfn Ólympíuleikanna í London.


Tengdar fréttir

Jessie J heldur tónleika á Íslandi

Breska tónlistarkonan Jessie J, sem hefur verið ein skærasta poppstjarna heims undanfarin ár, ætlar að halda tónleika í Laugardalshöllinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×