Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Er nánast allt klappað og klárt?

Atli Viðar Björnsson fagnar á Kaplakrikavelli í gær.
Atli Viðar Björnsson fagnar á Kaplakrikavelli í gær. Vísir/Stefán
Sextánda umferð Pepsi-deildar karla lauk í gærkvöldi með fjórum leikjum? Hverjir áttu góðan dag og hverjir erfðan dag? Hvernig var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

FH tók risastórt skref í átt að öðrum Íslandsmeistaratitli sínum í röð með 3-2 sigri á Stjörnunni á heimavelli sínum í Kaplakrika í gær. FH-ingar eru nú með sjö stiga forystu á næstu lið þegar sex umferðir eru eftir.

Fylkir og Þróttur töpuðu bæði illa í gær og fátt sem bendir til annars en að liðin muni áfram verma botnsæti deildarinnar þar til yfir lýkur. ÍBV tapaði reyndar líka og er aðeins fjórum stigum frá fallsæti, þjálfaralausir ofan á allt saman.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

KR - Breiðablik 1-1

Víkingur Ó - Fjölnir 2-2

Víkingur - ÍBV 2-1

FH - Stjarnan 3-2

Fylkir - ÍA 0-3

Þróttur - Valur 0-4

Verður bikarinn áfram í Krikanum.Vísir/Stefán
Góð umferð fyrir ...

... Kassim Doumbia

Hver man ekki eftir úrslitaleik Íslandsmótsins 2014? Þegar Kassim Doumbia trylltist eftir að hafa fengið dæmda á sig vítaspyrnu í uppbótartíma sem tryggði svo Stjörnunni ótrúlegan Íslandsmeistaratitil? Það er óhætt að segja að leikurinn í gær hafi verið ákveðin sárabót fyrir Doumbia. Hann skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu þegar hann kom FH í 2-1 forystu og var svo í fyrstu svo líka skráður fyrir sigurmarki leiksins, þrátt fyrir að hafa viðurkennt eftir leik að það hafi verið sjálfsmark. KSÍ breytti því svo reyndar nú í morgunsárið. Hvort þetta verði síðasta tímabil Doumbia með FH á eftir að koma í ljós. En hann var skælbrosandi eftir leikinn í gær og mátti líka vera það.

... Milos Milojevic

Þjálfari Víkinga náði að koma sínum mönnum aftur á rétta braut eftir ótrúlegt 7-0 tap fyrir Val í síðustu umferð. Milojevic dró ekki undan í viðtölum eftir tapleikinn en hans menn sýndu með dramatískum 2-1 sigri á ÍBV í gær að liðið brotnaði ekki við að vera flengdir af Hlíðarendapiltum. Fyrir það fær þjálfari liðsins verðskuldað hrós.

... Ólafsvíkinga

Nýliðarnir af vesturlandinu hafa verið í frjálsu falli síðustu vikurnar og þó svo að Víkingur Ólafsvík hafi ekki unnið deildarleik í tæpa tvo mánuði (3-2 gegn Þrótti, 28. júní) verður það að teljast jákvætt að ná í stig gegn liði sem er í toppbaráttu þrátt fyrir að hafa misst mann af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik. Fyrir vikið er liðið sex stigum frá fallsæti og útlitið aðeins bjartara. Ólafsvíkingar sýndu loksins lífsmark.

Blikar fagna marki sínu gegn KR-ingum.Vísir/Stefán
Erfið umferð fyrir ...

... Fylkismenn

Árbæingar voru slegnir utanundir í gær. Þegar loksins eitthvað virtist ætla að ganga Fylkismönnum í hag buðu leikmenn liðsins upp á einhverja verstu frammistöðu liðsins sem sést hefur í Árbænum í háa herrans tíð í 3-0 tapinu gegn ÍA í gær. Fylkir hafði ekki tapað þremur leikjum í röð fyrir gærdaginn og sótti þrjú stig á erfiðum útivelli gegn ÍBV í umferðinni á undan en í gær var ekkert sem benti til þess að þar væri að spila lið sem ætti nokkuð erindi í Pepsi-deildina.

... Rúnar Pál Sigmundsson

Þjálfari Stjörnunnar hefur mátt horfa á sína menn gefa nánast alla möguleika liðsins í titilbaráttunni frá sér í síðustu umferðum. Niðurstaðan úr síðustu þremur leikjum liðsins er aðeins eitt stig og eftir tapið gegn FH í gær eru nú sjö stig í Hafnfirðinga. Átján stig eru enn í pottinum en það er erfitt að sjá fyrir sér að Íslandsmeistararnir sleppi takinu af bikarnum úr þessu.

... leikmenn ÍBV

Á laugardaginn kom tilkynningin frá Eyjamönnum eins og þruma úr heiðskíru lofti. Bjarni Jóhannsson er hættur sem þjálfari ÍBV og enginn vill segja af hverju. Arftakar hans neita að tjá sig um málið og leikmenn segjast ekkert vita. Forráðamenn ÍBV vilja heldur ekkert segja og Bjarni hefur ekki látið ná í sig. ÍBV tapaði fyrir Víkingi Reykjavík í gær og er fyrir vikið enn ekki laust við falldrauginn. Það gætu verið erfiðar vikur fram undan fyrir Eyjamenn.

Þróttarar í varnarvegg.Vísir/Stefán
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Floridana-vellinum:

Þeir eru glæsilegir, Skagamennirnir með sína ljósu aflitaða lokka. Taka hér reit og gefa hvergi eftir. Sumir í hvítum vestum, aðrir bláum, einhverjir í engum og enn aðrir í svörtum galla. Allskonar.

Anton Ingi Leifsson á Hásteinsvelli:

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari hefur ekki undan að skrifa eiginhandaráritanir hér í hálfleiknum, nokkrar ungar Víkingsstelpur stóðu í röð þar sem hann situr í stúkunni og fengu hann til að skrifa á allt lauslegt. Endaði svo með hópfaðmlagi. Toppmaður hann Heimir.

Árni Jóhannsson á Alvogen-vellinum:

Ég veit ekki hvað var að gerast þarna. Stefán Logi markvörður gleymdi að henda boltanum útúr teignum og allt í einu voru Blikar komnir með boltann og Stefán þurfti að drífa sig í markið.

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Guðjón Pétur Lýðsson, Val 8

Kristinn Freyr Sigurðsson, Val 8

Andri Adolphsson, Val 8

Kassim Doumbia, FH 8

Hólmbert Aron Friðjónsson, Stjörnunni 8

Hallur Flosason, ÍA 8

Arnar Már Guðjónsson, ÍA 8

Arnar Bragi Bergsson, Fylki 2

Emil Ásmundsson Fylki 2

Umræðan á #pepsi365


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×