Lífið

Unnið að gerð Borgríkis tvö

Framhald Ólafur Jóhannesson vinnur að gerð framhaldsmyndar um Borgríki, en myndin hefur fengið góða dóma og prýðilega aðsókn.
Framhald Ólafur Jóhannesson vinnur að gerð framhaldsmyndar um Borgríki, en myndin hefur fengið góða dóma og prýðilega aðsókn.
„Þegar við skrifuðum þennan heim byrjuðum við á því að byggja hann ítarlega upp með því að tala við lögreglu, bankamenn, lögfræðinga og fleira fólk,“ segir Ólafur Jóhannesson kvikmyndaleikstjóri. Stefnt er að því að gera framhaldsmynd af Borgríki, sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum og hefur mælst einstaklega vel fyrir.

Ólafur og samstarfsfélagi hans, handritshöfundurinn Hrafnkell Stefánsson, eru þegar byrjaðir að skrifa handritið. „Það kom ansi safaríkur heimur upp úr þessari vinnu okkar og sögurnar í Borgríki voru þær fyrstu sem okkur datt í hug. Við vorum með hugmyndir um framhald en við vildum auðvitað sjá hvort almenningur hefði áhuga á þessu.“ Og áhuginn hefur svo sannarlega verið til staðar, hátt í tíu þúsund manns hafa séð myndina, sem fjallar um blóðug átök í undirheimum Reykjavíkur.

Leikstjórinn segir að framhaldið bjóði upp á ansi marga möguleika en reiknar með að þetta verði sömu persónur að mestu leyti. Sami vinnuhópur mun hins vegar koma að myndinni og það skiptir Ólaf miklu máli enda tókst honum að láta dæmið ganga farsællega upp. Umfangið verður hins vegar meira næst því Ólafur býst við því að fara hina hefðbundnu leið í fjármögnun myndarinnar.

„Aðsóknin og endurgerðin í Bandaríkjunum á vonandi eftir að liðka fyrir og veita okkur ákveðinn hljómgrunn. Hins vegar er niðurskurður í kvikmyndagerð á Íslandi og við vitum því ekki alveg hvenær og hvort við fáum vilyrði, það ræðst bara á næstu sex mánuðum.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×