Íslenski boltinn

Ungur Fjölnismaður til Rauðu stjörnunnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Djorde Panic gerði tveggja ára samning við Rauðu stjörnuna.
Djorde Panic gerði tveggja ára samning við Rauðu stjörnuna. mynd
Djorde Panic, leikmaður Fjölnis, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Rauðu Stjörnuna í Belgrad.

Djorde, sem er fæddur árið 1999, hefur alltaf verið í Fjölni og æft með meistaraflokki liðsins að undanförnu.

Djorde er þegar farinn út til Serbíu og hafið æfingar með Rauðu stjörnunni. Fyrst um sinn mun hann spila og æfa með U-19 ára liðinu en forráðamenn Rauðu stjörnunnar binda miklar vonir við Djorde.

Djorde hefur leikið sjö leiki fyrir U-17 ára landslið Íslands.

Rauða Stjarnan er sigusælasta félagið í Serbíu en það hefur 27 sinnum orðið serbneskur meistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×