Innlent

Ungir sjálfstæðismenn leggjast gegn Stjórnstöð ferðamála

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ungir sjálfstæðismenn hafa unnið í málefnavinnu undanfarið. Myndin er af Facebook síðu Ungra XD en birt með leyfi formanns.
Ungir sjálfstæðismenn hafa unnið í málefnavinnu undanfarið. Myndin er af Facebook síðu Ungra XD en birt með leyfi formanns. Mynd/UngirXD
Ungir sjálfstæðismenn leggjast gegn nýrri Stjórnstöð ferðamála. Þá vilja þeir að hætt verði við þau áform að framhaldsskólanám verði aðeins í boði fyrir þá sem eru yngri en 25 ára, sýslumenn taki alfarið yfir framkvæmd hjónavígslna og að Ríkisútvarpið verði lagt niður. Þá telja þau framtíðarlausn felast í öðrum gjaldmiðlum en krónunni og leggja áherslu á að lögreglu verði gert skylt að mynda skýran og opinberan verkferil í kynferðisbrotamálum.

Þetta er aðeins brot af þeim málum sem Ungir sjálfstæðismenn leggja áherslu á en hópurinn mun leggja fram áttatíu breytingartillögur á ályktunardrögum málefnanefnanefnda Sjálfstæðisflokksins á landsfundi. Landsfundur flokksins hefst í dag og stendur fram á sunnudag.

Hörður Þórhallsson verður framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála.Vísir/Valli
Stjórnstöð ferðamála er að mati Ungra sjálfstæðismanna aðeins viðbót við þær stofnanir sem fyrir eru og þegar fara með málefni ferðaþjónustunnar. Þeir leggjast gegn útþenslu ríkisvaldsins sem í hinni nýju stofnun felst.

Ungliðahreyfingin leggur til umfangsmiklar breytingar

Stjórnstöð ferðamála var komið á fót nú í október og hefur nú þegar sætt mikilli gagnrýni. Til að mynda sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, að óljóst væri hvernig það að koma á fót en einni stofnuninni leysti vanda ferðaþjónustunnar og Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar og þingmaður Framsóknar, telur sýnt að með þessu sé ekki sýnd ráðdeild í rekstri. Þá hefur ekki síst verið gagnrýnd sú ákvörðun að ráða Hörð Þórhallsson framkvæmdastjóra og það án auglýsingar. Stundin hefur flutt fréttir af því að Hörður sé Sjálfstæðismaður og sé skráður á landsfund sem fram fer nú um helgina.

Það eru því ekki aðeins þingmenn stjórnarandstöðu og Framsóknar sem leggjast gegn Stjórnstöð ferðamála heldur einnig ungliðahreyfing flokks Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðarráðherra.

Laufey Rún Ketilsdóttur, formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, segir það stefnu SUS hvað varðar Stjórnstöð ferðamála að ekki sé verið að auka ríkisútgjöld. Hins vegar væri það til góðs ef að stofnunin þjónaði sem samráðsvettvangur og gerði það að verkum að önnur ríkisbatterí yrðu lögð niður.

Laufey Rún Ketilsdóttir formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.Mynd/SUS
Ungir sjálfstæðismenn eru gagnrýnir á eigin flokk í tillögum sínum hvað varðar fleira en umrædda stjórnstöð og segja sjálfir fjölda þeirra endurspegla umfang þeirra breytinga sem ungir sjálfstæðismenn „telja nauðsynlegar til þess að Sjálfstæðisflokkurinn verði aftur að raunhæfum kosti fyrir ungt fólk.“

Því sér ekki aðeins stað í fyrrnefndri tillögu varðandi Stjórnstöð ferðamála heldur er það tillaga Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra og þingmanns Sjálfstæðisflokksins að 25 ára aldursþak verði sett á þá sem hyggja á nám í framhaldsskóla.

„Sjálfstæðismenn þurfa að horfast i augu við það að fylgi ungs fólks við flokkinn er að hverfa. Ungt fólk vill frjálsara samfélag og tillögur okkar ganga út á það,“ segir Laufey Rún. Hún hefur fulla trú á því að tillögurnar komi til með að hafa þýðingu þegar kemur að stefnumótunarstarfi flokksins um helgina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×