Innlent

Ung stúlka féll af hestbaki

Atli Ísleifsson skrifar
Vinstri fótur stúlkunnar lenti undir hrossinu. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Vinstri fótur stúlkunnar lenti undir hrossinu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Ung stúlka féll af baki þegar hestur hennar hnaut með hana í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um nýliðna helgi.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að vinstri fótur stúlkunnar hafi lent undir hrossinu og var hún flutt á heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Þá greinir frá því að ungur maður hafi farið úr axlarlið þegar hann var við æfingar á sjó í Grindavíkurhöfn. „Hann var á Landsmóti unglingadeila Landsbjargar og var að æfa sig í að fara milli báta þegar óhappið varð. Hann datt og lenti á hendinni með þeim afleiðingum að öxlin fór úr lið. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×