Undirbúa stofnun skóla fyrir fötluð börn sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 20. janúar 2016 14:45 Steinunn segir mikla þörf á frekari úrræðum fyrir fötluð börn. vísir/vilhelm
Hafinn er undirbúningur við stofnun skóla fyrir fötluð börn sem þurfa á miklum stuðningi að halda. Markmiðið er að bjóða upp á einstaklingsmiðaða þjónustu allan ársins hring. Til stendur að opna skólann fyrir haustið 2017. Hópur fagfólks stendur að verkefninu en þeirra á meðal er Steinunn Hafsteinsdóttir atferlisfræðingur. Hún segir mikla þörf á frekari úrræðum fyrir fötluð börn, sérstaklega börn á grunnskólaaldri.Ákveðinn hópur sem vill gleymast „Það er ákveðinn hópur barna með þyngstu greiningarnar sem sveitarfélögunum gengur ekki nógu vel að sinna. Foreldrar eru að kalla eftir aukinni þjónustu og sérstaklega foreldrar þeirra barna sem hafa verið með börnin í atferlismeðferð í leikskólum. Þau taka oft miklum framförum og það er mikið aðhald í þjálfuninni, sem svo breytist þegar þau koma í grunnskóla. Það tekur ekkert við af þjálfuninni þegar börnin eru komin í grunnskóla.“ Hún segir að um væri að ræða fullan stuðning allan daginn. „Við reiknum með að þau börn sem koma til okkar verði börn sem þurfa mikinn stuðning, alveg manninn á sig. Þannig að þetta yrði kennsla og öll frístund, allan daginn.“Ekki gróðastarfsemi Um sjálfseignarstofnun verður að ræða sem á að halda utan um reksturinn. „Þetta er non-profit, ekki gróðastarfsemi. Þetta verður væntanlega rekið á því fjármagni sem kemur með hverju barni frá sveitarfélögunum. Það er verið að borga með þessum börnum í sérskóla, sérdeildir og almenna skólann og það væri bara sá peningur sem færi til okkar,“ segir Steinunn og bætir við að bundnar séu vonir við að fá styrkveitingar. Þá hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvar skólinn verði staðsettur. Stefnt er á að opna hann á höfuðborgarsvæðinu. „Við þurfum að fara í viðræður við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, enda erum við öll hér. En hugmyndin er að fá að leigja inni í öðrum skóla, líkt og alþjóðaskólarnir á höfuðborgarsvæðinu. Þeir leigja húsnæði af almennum skóla og þannig er hægt að samnýta frímínútur og ýmislegt í skólanum. Þannig yrði blöndunin meiri og skólinn ekki einn og sér.“Þeim sem vilja leggja málefninu lið er bent á að hafa samband við Atla Magnússon í gegnum netfangið atli.magnusson@gmail.com. Ég og kollegar mínir, Maria Sigurjonsdottir , Steinunn Hafsteinsdóttir og Ida Jensdóttir ásamt hópi foreldra erum að...Posted by Atli Magnusson on 17. janúar 2016
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira