Umfjöllun: Keflavík og Breiðablik stigi nær öruggu sæti Guðmundur Marinó Ingvarsson á Nettóvellinum skrifar 15. september 2011 16:15 Mynd/HAG
Keflavík og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í Keflavík í kvöld í fjörugum fótboltaleik þar sem bæði lið lögðu allt í sölurnar til að ná í þrjú stig og fara langt með að tryggja sæti sitt í deildinni að ári. Leikurinn fór rólega af stað en Keflavík gerði nokkrar atlögur að marki Breiðabliks úr föstum leikatriðum áðurn Breiðablik komst yfir úr sínu fyrsta skoti á 19. mínútu. Leikurinn var í jafnvægi eftir markið en Keflavík átti í vandræðum með að skapa sér færi til að jafna nema eftir föst leikatriði og það var einmitt eftir horn sem Jóhann Birnir Guðmundsson jafnaði metin tveimur mínútum fyrir hálfleik. Seinni hálfleikur var mun opnari en sá fyrri og fengu bæði lið urmul af færum til að tryggja sér sigur í leiknum. Breiðablik hitti ekki markið nema einu sinni úr öllum sínum færum og þá varði Ómar en hinu megin var Sigmar í miklu stuði í marki Breiðabliks. Liðin sættust því á jafntefli og halda Fram enn sex stigum frá sér nú þegar níu stig eru í pottinum. Hefði annað liðið sigrað leikinn hefði það farið langt með að tryggja sæti sitt í deildinni á næsta tímabili og því má segja að staðan sé óbreytt hjá liðunum eftir leikinn. Bæði lið þurfa einn sigur til að sætið í Pepsí deildinni 2012 sé tryggt.Keflavík-Breiðablik 1-1 0-1 Tómas Óli Garðarsson (19.) 1-1 Jóhann Guðmundsson (43.) Nettóvöllur. Áhorfendur: 623 Dómari: Gunnar Jarl Jónsson 7Tölfræðin: Skot (á mark): 12-5 (8-2) Varin: Ómar 1 – Sigmar 7 Hornspyrnur: 8-4 Aukaspyrnur fengnar: 17-8 Rangstöður: 3-3
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Fótbolti „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Fótbolti „Þetta var alltaf mitt mark“ Fótbolti Fleiri fréttir „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sjá meira