Innlent

Umferðarteppa við Hvalfjarðargöng

vísir/freyr rögnvaldsson
Löng röð bíla myndaðist við Hvalfjarðargöng á þriðja tímanum í dag vegna forgangsaksturs sjúkrabíls.

Að sögn lögreglu var um bráðaveikindi að ræða og var göngunum því lokað í um það bil tíu mínútur. Nokkuð algengt sé þó að göngunum sé lokað vegna neyðaraksturs. Búið er að opna göngin að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×