Tvö þúsund skulda sektir en geta ekki valið að sitja í fangelsi í stað þess að borga Birgir Olgeirsson skrifar 5. desember 2016 14:34 Frá fangelsinu á Hólmsheiði. Vísir/Anton Brink
Í nýjasta tölublaði Lögbirtingablaðsins er tilkynnt að 86 einstaklingar iegi yfir höfði sér fangelsisvist vegna ógreiddra sekta. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem er sagt frá því að um 2.000 manns séu á leið í fangelsi vegna ógreiddra sekta. Erna Björg Jómundsdóttir, deildarstjóri innheimtu hjá sýslumanninum á Norðurlandi vestra, segir í samtali við Vísi að það sé ekki svo að það sé ekki val þess sem sætir refsingu að sitja inni í stað þess að borga sektina. Fullnusta sekta fer eftir ákvæðum laga um slíkt en samkvæmt þeim er heimilt að leyfa að sekt sé greidd á afborgunum og eru allflestir sem nýta sér það að sögn Ernu. Ef sekt er hins vegar ekki greidd á tilskyldum tíma eða um hana samið skal innheimta með aðför. Þegar þeim aðgerðum er lokið er svo tekin ákvörðun um beitingu vararefsingar. „Afplánun er ekki val þess sem sætir refsingu, ákvörðun er tekin af innheimtufulltrúa að öðrum innheimtuaðgerðum fullreyndum,“ segir Erna. Hún segir það ekki vera svo að 2.000 manns muni fara í fangelsi, það sé hins vegar búið að birta þeim ákvörðun um að innheimtuaðgerðir séu fullreyndar og því standi til að beita vararefsingu ef ekki er greitt. „Hluti þessa fólks hefur svo sótt um að afplána vararefsingu með samfélagsþjónustu,“ segir Erna. Hún segir afplánun vararefsingar ekki fara inn á sakavottorð. „Það er brotið sjálft sem er skráð á sakaskrá við dóm eða sátt ef við á,“ segir Erna.Í Morgunblaðinu kemur fram að í flestum tilvikum sé um að ræða einstaklinga sem skulda 200 til 300 þúsund krónur vegna sekta. Upphæðirnar ná þó frá 5000 krónum og yfir í 100 milljónir, sektir vegna umferðarlagabrota eru algengastar en þyngstu refsingarnar eru vegna skattalagabrota.
Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira