Íslenski boltinn

Tvö knatthús rísa í Kaplakrika

Guðjón Guðmundsson skrifar
FH-ingar hafa hafið framkvæmdir við tvö ný knatthús við Kaplakrika en félagið fjármagnar þær með eigin fé.

Sami háttur var hafður á þegar Risinn, fyrsta knatthús FH, reis á árunum 2004-5. Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, sagði frá verkefninu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Áætlað er að þessi verkefni muni klárast að fullu haustið 2015. Við áætlum að minna knatthúsið verði tekið í notkun í haust,“ sagði Jón Rúnar meðal annars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×