Innlent

Tvísýnt um verslun í vinsælli sumarhúsabyggð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Húsnæðið hefur hýst vegasjoppu í einni stærstu sumarhúsabyggð á Íslandi. Rekstur þar lagðist af í október síðastliðnum.
Húsnæðið hefur hýst vegasjoppu í einni stærstu sumarhúsabyggð á Íslandi. Rekstur þar lagðist af í október síðastliðnum. Mynd/Aðsend
Alls óvíst er hvort verslun að Minni-Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi muni hefjast þar aftur á næstunni. Verslunin hefur þjónað einni vinsælustu sumarhúsabyggð landsins, þar sem eru á þriðja þúsund sumarhús, um árabil, auk þess sem í sveitarfélaginu er 460 manna íbúabyggð.

Eftir að rekstur verslunarinnar lagðist af síðasta haust vegna erfiðleika rekstraraðila leitaði Olís, sem er eigandi hússins, að nýjum aðilum til að taka við. „Við vorum komin með aðila sem hafði áhuga á að taka að sér reksturinn. En svo brást það þannig að við brugðum bara á það ráð að auglýsa húsið til sölu,“ segir Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri smásölusviðs hjá Olís.

Ingibjörg Harðardóttir, sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi
„Það er þó nokkuð mikið af fólki búið að skoða þetta,“ segir Svan G. Guðlaugsson, sölumaður hjá Fasteignasölunni Mikluborg. Hann segir ástandið á húsinu vera slæmt. „Það er nú það sem málið snýst um en það eru margir áhugasamir sem vilja gera eitthvað þarna. Annaðhvort opna verslun eða breyta þessu að hluta til í gistingu. En það þarf að taka allt húsið í gegn,“ segir hann.

„Ég sakna hennar. Ég get alveg viðurkennt það og ég veit að það gera það mjög margir en alls ekki allir,“ segir Ingibjörg Harðardóttir sveitarstjóri. Selfoss er í um það bil 20 kílómetra fjarlægð frá Minni-Borg og Ingibjörg segir að íbúar sæki mikið þangað. „Það er kannski hluti af ástæðunni fyrir því að búðin hætti, að það er ekki verslað nóg í henni,“ segir Ingibjörg. Fólk fari til Selfoss til að gera stórinnkaup, en það sé bagalegt að geta ekki farið á Minni-Borg til að gera smærri innkaup. „En ég hugsa að það séu fleiri sem sakna félagslega þáttarins úr búðinni heldur en verslunarinnar sjálfrar. Hann var heilmikill,“ segir Ingibjörg.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×