Lífið

Tvíburarnir sameinaðir á ný

Arnold Schwarzenegger og Danny DeVito
Arnold Schwarzenegger og Danny DeVito Vísir/getty
Þeir félagar Arnold Schwarzenegger og Danny DeVito, sem fóru með aðalhlutverkin í gamanmyndinni Twins frá 1988, hittust aftur um helgina, líklega í fyrsta sinn frá því myndin var gerð fyrir 27 árum. 

Tilefnið var þýska verðlaunahátíðin Goldene Kamera eða Gyllta myndavélin. DeVito afhendi Schwarzenegger sérstök heiðursverðlaun fyrir afrek sín. Sögðu viðstaddir að Schwarzenegger hefði verið tárvotur þegar hann þakkaði fyrir þennan heiður í ræðu sinni um leið og hann hvatti aðdáendur sína til þess að gefa aldrei upp vonina.

Sögusagnir um að gera ætti framhald af kvikmyndinni Twins háværar árið 2012 og að handritið að henni væri tilbúið. Átti myndin að heita Triplets eða þríburarnir og átti Eddie Murphy að fara með hlutverk þriðja bróðursins. 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×