Tónlist

Tvennir tónleikar í hverri borg

U2 er á leið í tónleikaferð um heiminn á næsta ári.
U2 er á leið í tónleikaferð um heiminn á næsta ári. NOrdicphotos/Getty
Hljómsveitin U2 hefur gefið í skyn að á tónleikaferð hennar á næsta ári til að fylgja eftir plötunni Songs of Innocence muni hún spila á tvennum tónleikum í hverri borg fyrir sig, innanhúss. Einum órafmögnuðum og einum „hávaðasömum og kraftmiklum“.

„Það eru uppi viðræður um tvenna mismunandi tónleika,“ sagði bassaleikari U2, Adam Clayton, við Rolling Stone. „Eitt kvöldið yrði spilað hávaðasamt, kraftmikið rokk og ról en hitt kvöldið yrðu órafmagnaðar útgáfur af mörgum lögum og lögin yrðu flutt á persónulegan hátt. En við vitum samt ekki hvernig þetta mun hljóma og líta út,“ sagði hann.

Á síðustu tónleikaferð U2, sem stóð frá 2009 til 2011, spilaði sveitin á 110 útitónleikum til að kynna plötuna No Line on the Horizon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×