Innlent

Tveir slösuðust við að detta í miðbænum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Kolbeinn Tumi

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tvær tilkynningar í gær vegna fólks sem datt á skemmtistöðum. Ein kona fékk áverka á höfði og var hún flutt á slysadeild til skoðunar. Þar að auki datt maður en meiðsl hans voru minniháttar.

Þá óku lögregluþjónar fram á bíl sem sat fastur í snjóruðningi. Samkvæmt dagbók lögreglunnar fannst greinileg áfengislykt af ökumanni bílsins og var hann fluttur á lögreglustöð. Ökumaðurinn var ekki sáttur við það og veittist að lögreglumönnum.

Þar að auki barst lögreglunni tilkynning um líkamsárás á skemmtistað og var sá sem varð fyrir árásinni fluttur á slysadeild. Ekki er vitað með gerendur. Þá var tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í austurbænum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×