Tuttuguogfimm ár síðan Danir urðu Evrópumeistarar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júní 2017 16:45 Dönsku leikmennirnir fagna. vísir/getty
Peter Schmeichel minnist þess á Twitter að í dag eru 25 ár síðan Danir urðu Evrópumeistarar í fótbolta.25 years ago today this happened#Denmark #Euro1992 pic.twitter.com/JtGy3C2zTc— Peter Schmeichel (@Pschmeichel1) June 26, 2017 Sigur Dana á EM 1992 er einn sá óvæntasti í fótboltasögunni enda átti danska liðið upphaflega ekki að vera með á mótinu. Dyrnar opnuðust fyrir Dani þegar Júgóslavía var dæmd úr leik vegna stríðsins þar í landi. Dönsku leikmennirnir voru kallaðir heim úr sumarfríi og til Svíþjóðar þar sem EM fór fram. Danir fóru rólega af stað í riðlakeppninni og voru aðeins með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina. En danska liðið tryggði sér sæti í undanúrslitunum með sigri á því franska í lokaumferð riðlakeppninnar. Í undanúrslitunum mættu Danir Evrópumeisturum Hollendinga í Gautaborg. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 2-2 og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Danir skoruðu úr öllum fimm spyrnum sínum en Schmeichel varði spyrnu Marcos van Basten og því fór danska liðið í úrslit. Í úrslitaleiknum, sem fór einnig fram á Ullevi í Gautaborg, mættu Danir Þjóðverjum. Leikurinn var 18 mínútna gamall þegar John Faxe Jensen kom Danmörku yfir með föstu skoti fyrir utan teig. Þjóðverjar sóttu meira í leiknum en Schmeichel var frábær í marki Dana. Hann varði t.a.m. tvisvar stórkostlega frá Jürgen Klinsmann. Þegar 12 mínútur voru til leiksloka gulltryggði Kim Vilfort sigur Danmerkur með laglegu marki. Lokatölur 2-0 og Lars Olsen, fyrirliði Dana, lyfti Evrópubikarnum í leikslok.
Fótbolti Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti Fleiri fréttir Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Sjá meira