Innlent

Tugum komið til bjargar á Hellisheiði og Lyngdalsheiði

Gissur Sigurðsson skrifar
Hellisheiðinni var lokað seint í gærkvöldi í enn eitt skiptið í vetur.
Hellisheiðinni var lokað seint í gærkvöldi í enn eitt skiptið í vetur. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitarmenn voru fram yfir miðnætti að aðstoða fólk í föstum bílum í Þrengslum, á Hellisheiði og Lyngdalsheiði, en þessu heiðum var lokað seint í gærkvöldi. Hundruð manna voru þá þegar lentir í vandræðum og komust hvergi.

Margir bílar voru skildir eftir og verða sóttir í dag. Þrengslavegur var opnaður aftur laust fyrir miðnætti og Hellisheiðin um klukkan tvö í nótt.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×