Innlent

Tuddi seldi kótelettur til styrktar krabbameinssjúkum börnum

Ingvar Haraldsson skrifar
Einar Björnsson og Hjörtur Freyr Vigfússon afhentu Grétu Ingþórsdóttur, framkvæmdastjóra styrktarfélagsins, gjöfina.
Einar Björnsson og Hjörtur Freyr Vigfússon afhentu Grétu Ingþórsdóttur, framkvæmdastjóra styrktarfélagsins, gjöfina.
Hálf milljón króna safnaðist fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna í kótelettusölu Golfklúbbsins Tudda á bæjarhátíðinni Kótelettunni á Selfossi í júní.

Tuddar gáfu Styrktarfélaginu 1.500 kótelettur auk þess að standa vaktina á grillinu á hátíðinni.

Gestir Kótelettunnar voru duglegir að kaupa kótelettur og styrkja átakið samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá styrktarfélaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×