Lífið

Tónleikagestir sáu kynfæri Kravitz

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Kravitz hélt ótrauður áfram.
Kravitz hélt ótrauður áfram. Mynd/Aftonbladet
Lenny Kravitz, söngvari, lenti í því óheppilega atviki á tónleikum í gær að leðurbuxurnar hans rifnuðu í klofinu. Söngvarinn var ekki í nærbuxum og því laumaðist limur hans út um gatið.

Söngvarinn fór af sviðinu stuttu eftir og kom tilbaka í nýjum buxum. „Afsakið þetta. Ég reif buxurnar mínar,“ sagði Kravitz þegar hann sneri aftur.

Fyrir neðan má sjá myndband af atvikinu þar sem sést hvar söngvarinn dansar með bassann um sviðið, beygir sig í hnjánum og buxurnar rifna.

Kravitz hefur ekkert tjáð sig um atvikið ennþá en hann er á tónleikaferðalagi um Evrópu til að kynna nýjustu plötu sína, Strut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×