Tónlist

Tómas Jónsson gefur frá sér plötu og nýtt myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hljómsveitameðlimir.
Hljómsveitameðlimir.
Tónlistarmanninum Tómasi Jónssyni hefur brugðið fyrir víða í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár og leikið með fjölbreyttum hópi listamanna, bæði á hljómleikum og á hljómplötum, hérlendis og erlendis. Í dag sendir hann frá sér sína fyrstu plötu í eigin nafni sem ber einmitt nafnið Tómas Jónsson.

Tónlistin á plötunni er draumkennd og uppfull af hljóðum úr hljóðgervlum áttunda áratugarins í bland við akústík og nútíma elektróník. Tónlistin er að mestu leiti laus við söng en þó kemur atómskáldið Sigfús Daðason við sögu þegar hann les eigið ljóð í laginu Að komast burt - The City of Reykjavík.

Hljómsveitin Tómas Jónsson skipa, ásamt Tómasi, þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson, Magnús Tryggvason Eliassen, Hilmir Berg Ragnarsson og Rögnvaldur Borgþórsson. Þeir munu að þessu tilefni koma fram í hljómplötubúðinni Lucky Records kl. 18.00 föstudaginn 28. október, daginn sem platan kemur í verslanir og á allar helstu tónlistarveitur. Einnig spilar hljómsveitin Tómas Jónsson á Iceland Airwaves hátíðinni sem hefst í næstu viku.

Hér að neðan má sjá glænýtt myndband frá sveitinni og er það við lagið Seigla.

Hér að neðan má síðan hlusta á plötuna í heild sinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×