Innlent

Tólf sagt upp störfum hjá ISS

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Guðmundur Guðmundsson
Guðmundur Guðmundsson
Tólf starfsmönnum á veitingasviði fyrirtækisins ISS var í gær sagt upp störfum og fengu nokkrir boð um endurráðningu í kjölfarið.

„Þetta tengist líka nýlegum kjarasamningum sem við þurfum að fara eftir. Þeir voru auðvitað þungt högg og við þurfum að endurskipuleggja okkar starfssemi með tilliti til þeirra,“ segir Guðmundur Guðmundsson, forstjóri ISS og bætir við að flestir hafi fengið boð um endurráðningu.„Endurráðningin er þá með breyttum kjörum eða öðrum vinnutíma.“

Guðmundir segir að sumir ætli að þiggja endurráðningu en aðrir séu að hugsa málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×