Tónlist

Tóku upp heilt myndband á trylltum einhjólum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nýja myndbandið frá hljómsveitinni OK Go við lagið I Won't Let You Down hefur vakið mikla athygli.

Myndbandið var tekið upp í Japan fyrir stuttu en í því sjást hljómsveitarmeðlimirnir ferðast um á einhjólum frá Honda sem heita Uni-Cub. Uni-Cub eru einskonar Segway-hjól fyrir fólk sem vill sitja í stað þess að standa.

Myndbandið var tekið upp með svokallaðri „multi-copter“-myndvél sem Honda þróaði sérstaklega fyrir þetta verkefni.

Myndbandið er rosalegt en það má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×