Lífið

Tók nektarmyndir af sér í sjö ár

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Polly Penrose ákvað að taka nektarmyndir af sér þegar hún komst á þrítugsaldurinn og tók eftir því að líkami sinn væri að breytast. Henni fannst það tilvalið til að sýna þær tilfinningar sem hún fann fyrir á hverjum tímapunkti.

Polly tók myndir af sér í sjö ár. Á fyrstu myndunum er hún ung, einhleyp kona. Síðan gengur hún í gegnum meðgöngu og verður svo móðir. 

Við fyrstu sýn minna myndirnar helst á skrýtnar jógastellingar en ef rýnt er í þær sést skap Polly breytast eftir því hvernig hún mótar líkama sinn.

Myndaseríuna kallar hún Body of Work og sýndi Polly hana í London fyrr á þessu ári. Í samtali við Feature Shoot segist hún hafa tekið enn fleiri myndir síðan þá og því gæti farið svo að önnur myndasería myndi líta dagsins ljós á næstu sjö árum.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af Polly í réttri tímaröð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×