Tók fjóra mánuði að fá niðurstöðu krufningar vegna manndrápsins í Breiðholti fanney birna jónsdóttir skrifar 24. janúar 2015 11:30 Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana í Breiðholti í september í fyrra er nú á réttargeðdeild Landspítalans á Kleppi. vísir/Stefán
Konan sem fannst látin í heimahúsi að Stelkshólum í Reykjavík í september á síðasta ári lést af mannavöldum. Þetta er niðurstaða krufningar á konunni. Tæpa fjóra mánuði tók að fá endanlega niðurstöðu krufningar í málinu. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og sérfræðingur í refsirétti, segir með ólíkindum hversu langan tíma taki að fá niðurstöðu krufningar. „Þetta er alveg með ólíkindum. Auðvitað er það ljóst að það er mjög bagalegt, bæði fyrir sakborning og auðvitað fyrir rannsakendur og ákæruvald, að krufning skuli taka svona langan tíma. Lögregla og saksóknari verða að gefa viðhlítandi skýringar á því hvers vegna krufning, sem ætti ekki að taka mikinn tíma, gerir það samt. Þetta er mjög undarlegt,“ segir Sveinn Andri. Tæplega þrítugur eiginmaður konunnar var handtekinn samdægurs grunaður um morðið. Hann sætir nú öryggisgæslu á réttargeðdeild Landspítalans á Kleppi.Sveinn Andri Sveinsson HæstaréttarlögmaðurMaðurinn hefur neitað sök Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur maðurinn staðfastlega neitað sök í málinu. Konan lést eftir að þrengt hafði verið að öndunarvegi hennar, en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að notað hafi verið einhvers konar band eða snæri við verknaðinn. Hélt maðurinn því fram að konan hefði tekið sitt eigið líf. Ríkissaksóknari hefur málið til meðferðar og tekur ákvörðun um hvort ástæða sé til að gefa út ákæru í málinu. Í tilkynningu frá lögreglu kom fram að maðurinn hafði samband við annan aðila sem lét lögreglu vita skömmu eftir miðnætti umrædda nótt í september. Við komu lögreglu á vettvang vaknaði strax grunur um að andlát konunnar hefði borið að með saknæmum hætti. Börn hjónanna, tveggja og fimm ára, voru á heimilinu nóttina sem konan lést. Í kjölfarið voru þau send í umsjá barnaverndaryfirvalda sem komu þeim í vistun hjá vinafólki hjónanna.
Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira