Íslenski boltinn

Töfluröð Pepsi-deildarinnar tilbúin: Risaleikir í lokaumferðinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslandsmeistarar FH taka á móti Blikum í lokaumferðinni.
Íslandsmeistarar FH taka á móti Blikum í lokaumferðinni. Vísir/Vilhelm
Pepsi-deild karla hefst í lok aprílmánaðar og nú er komið í ljós í hvaða umferðum liðin tólf mætast á komandi tímabili.

Knattspyrnusambandið birti frétt í dag þar sem sagt er frá því að búið sé að draga í töfluröð í Pepsi-deild karla.

Íslandsmeistarar FH-inga hefja titilvörnina á Akranesi þegar þeir mæta ÍA og nýliðarnir fá krefjandi verkefni. KA heimsækir Breiðablik og Grindavík tekur á móti Stjörnunni. Valur fær Víking frá Ólafsvík í fyrstu umferð, KR fær Víking R. í Frostaskjól og ÍBV byrjar heima gegn Fjölni.

Það verða tveir stórleikir í lokaumferðinni en þá taka FH-ingar á móti Blikum og KR-ingar fá Stjörnuna í heimsókn.

Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, sagði í samtali við Vísi að þrjú skilyrði hafi verið gefin áður en dregið var.

Í fyrsta lagi að KA fengi útileik í fyrstu tveimur umferðunum, að Íslandsmeistarar FH mæti ekki hinum liðunum sem taka þátt í Evrópukeppninni í ákveðnum umferðum í júlí og að Evrópuliðin fái ekki útileik gegn KA og ÍBV þegar þau spila sína Evrópuleiki.

Íslenskur toppfótbolti, samtök félaga í efstu deild, kom með tillögur að þessum skilyrðum sem farið var eftir. En leikjum var ekki raðað sérstaklega niður með það í huga að fá stórleiki í síðustu umferðinni.

„Það var ekkert inngrip um að fá ákveðna leiki í ákveðnar umferðir,“ sagði Birkir við Vísi.

Gert er ráð fyrir að Pepsi-deild karla hefjist 30. apríl og að lokaumferðin verði leikin þann 30. september. Drög að leikdögum verður birt á næstu dögum.

Fyrri leikur KR og FH fer fram á KR-vellinum í 5. umferðinni en sá síðari í Hafnarfirðinum í 16. umferðinni.

Smelltu hérna til að sjá leikaröðina í Pepsi-deild karla 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×