Tíu sagt upp á Raufarhöfn Sveinn Arnarsson skrifar 7. mars 2017 07:00 "Það logar allt,“ segir heimamaður um uppsagnir á Raufarhöfn. vísir/pjetur
Fiskverkun Hólmsteins Helgasonar hefur sagt upp öllum tíu starfsmönnum sínum á Raufarhöfn. Fyrirtækið fékk ekki sértækan byggðakvóta. GPG fiskverkun á Húsavík fékk úthlutað öllum þeim kvóta á stjórnarfundi Byggðastofnunar. „Það logar allt og fólk mun flytja í burtu,“ segir Guðrún Rannveig Björnsdóttir, verslunarmaður á Raufarhöfn.Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings.Fyrirtækið Hólmsteinn Helgason ehf. hefur starfrækt saltfiskverkun á Raufarhöfn í nokkurn tíma núna og hafa forsvarsmenn þess einnig keypt eina fjölbýlishúsið á Raufahöfn auk hótels á staðnum og ætlað sér mikla uppbyggingu. Þau uppbyggingaráform nú eru í hættu. Hólmsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri Hólmsteins Helgasonar ehf., vildi ekki ræða við blaðamann í gær en staðfesti að öllum starfsmönnum hefði verið sagt upp og að ákvörðun Byggðastofnunar um að veita þeim ekki sértækan byggðakvóta hafi svo sannarlega ekki hjálpað fyrirtækinu. „Á stjórnarfundi Byggðastofnunar var ákveðið að ganga til samninga við GPG fiskverkun um að veiða þann sértæka byggðakvóta sem við höfum til skiptanna á Raufarhöfn,“ segir Sigurður Árnason, sérfræðingur Byggðastofnunar. „Miðað við þær forsendur sem voru í umsóknum aðila þá var tekin ákvörðun um að semja við GPG. Við reyndum, í samvinnu við atvinnuþróunarfélag Þingeyinga að fá menn til að vinna saman en það gekk ekki upp. Þá var bara komið að því að taka ákvörðun og hún er þessi.“ Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, segir það mjög slæmt að tíu störf glatist í svo litlu plássi eins og Raufarhöfn er. „Menn hafa verið að leita leiða til að fjölga atvinnutækifærum og sannarlega var þessi sértæki byggðakvóti liður í því að reyna að styrkja atvinnulífið,“ segir Kristján Þór. „Ef þessi tíu störf finnast ekki annars staðar er það mjög slæmt.“ Raufarhöfn hefur verið skilgreind sem brothætt byggð og hafa margvíslegar aðgerðir stjórnvalda beinst að því að halda sjávarþorpinu í byggð. Staðan er því mjög erfið nú þar sem tíu hefur verið sagt upp á einu bretti. 189 einstaklingar voru með lögheimili á Raufarhöfn í byrjun árs 2016.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira