Lífið

Titringur í háloftunum: Víbrator í vél WOW

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ljósmyndin var tekin inni í flugvélinni í morgun.
Ljósmyndin var tekin inni í flugvélinni í morgun.
Töluvert hefur verið fjallað um flugfélagið WOW í íslenskum miðlum að undanförnu. Nú síðast í gær þegar fjallað var um flugmenn sem voru að daðra við farþega í vélinni með því að skiptast á myndum í gegnum internetið.

Sjá einnig: Flugmenn WOW í klandri eftir daður í háloftunum

Í dag fannst þessi forlátavíbrator á gólfinu í vél WOW sem var að lenda frá San Francisco. Tólið fannst á gólfinu fyrir framan salernið í vélinni.

Eigandi velur aðeins það besta og notar því Energizer rafhlöðu í tækið. Þess má geta að svona kemst fólk þó ekki í Mile High Club.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×