Innlent

Titanic siglir til Svíþjóðar

Samúel Karl Ólason skrifar
Brynjar Karl hefur undanfarin misseri verið með skip sitt til sýningar í Smáralindinni.
Brynjar Karl hefur undanfarin misseri verið með skip sitt til sýningar í Smáralindinni. Vísir/VALLI
Hinn tólf ára gamli Brynjar Karl Birgisson mun taka þátt í einni stærstu Legósýningu Norðurlanda. Sex og hálfs metra löng eftirgerð Brynjars af skipinu Titanic sem hann smíðaði úr 50 þúsund legókubbum hefur nú verið pakkað saman fyrir siglinguna til Svíþjóðar.

Það var fyrir um ári síðan sem Brynjar Karl, sem er einhverfur, ákvað að ráðast í byggingu eftirmyndarinn af uppáhaldsskipinu sínu. Í gær birti Brynjar mynd af smiðum sem voru að vinna að því að smíða grind undir skipið.

Sýningin sem Brynjar Karl tekur þátt í heitir Klossfestivalen og er haldin í Örebro 10. til 12. júlí næstkomandi.

Þessir tveir vinir mínir eru að hanna sérstaka grind sem verður smíðuð utanum TITANIC. Nú fer það í gám og í skip til Sv...

Posted by Brynjar Karl on Tuesday, June 2, 2015
„Ævintýrið heldur áfram hjá Brynjari,“ segir Bjarney Lúðvíksdóttir, móðir Brynjars. „Hann verður viðstaddur þegar skipið verður sett saman og sett upp fyrir sýninguna. Þá mun hann kynna sögu þess og verkefnið sitt sem hann er nú mikið að vinna í.“

Frekari upplýsingar um verkefni Brynjars má sjá á heimasíðu hans.


Tengdar fréttir

Titanic í Smáralind

Brynjar Karl Birgisson afhjúpaði stórvirki sitt í Smáralind í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×